Ég verð að viðurkenna að ég var búin að gleyma að ég var með blogg.. og það er meira að segja ekki lýgi, ég fattaði allt í einu að ég væri með blogg þegar ég sá á hotmailinu mínu að Fríða hefði skrifað athugasemd við síðustu bloggfærslu, talvan mundi ekki einu sinni eftir linknum á síðuna mína..
nohh jæja þá get ég farið að blogga eitthvað aftur, eins og áður þá verður það nú örugglega ekkert svo oft.. en núna langar mig að segja smá frá hvað hefur skeð og hvað er að fara að ske síðan ég bloggaði síðast. ég er semsagt byrjuð í hálfsárs starfsþjálfun í uppeldisfræðináminu mínu og ég er að vinna á stað sem býður dagstilboð það er að segja einskonar vinnu fyrir andlega og líkamlega fatlað fullorðið fólk, þetta er mjög góður og gefandi starfsstaður og ég er mjög ánægð að vera komin þangað í starfsþjálfun, til að byrja með var ég mjög neikvæð, en ég er bara mjög hissa hversu vel mér líkar við að vera þar. Í dag og á morgun erum við á námskeiði, þar sem að við erum að læra um hvernig heilinn starfar hjá fólki sem er andlega og líkamlega fatlað, og hvað skeður þegar fólk fær flogaveiki.. mjög spennandi námskeið.
Svo er ég líka ný byrjuð í bíóinu hérna í Thisted, var á minni fyrstu vakt í dag eða þar sem ég var að læra hvernig maður á að selja miða og hvar maður á að kveikja ljósið og svona.. seldi mína fyrstu miða líka. Svo nú er ég komin með svona tilkalla vinnu í bíóinu, ekkert fast.. en vona að það verði samt þörf á mér
það gengur mjög vel með hundana, ég hef eiginlega ákveðið að Gloría eigi að fá hvolpa aftur nú þegar hún kemur á lóðarí og það er nú bara handan við hornið, annars erum við að fara að keppa á Laugardaginn, ég og Idaho erum búin að æfi mikið svo við vonumst til að það muni ganga vel..
annars er bara mest lítið að frétta.. við vonumst til að mamma og pabbi komi um jólin svo við fáum að njóta jólanna með þeim og svo að pabbi geti fengið að sjá hvernig við búum hérna úti í danaveldinu..
jæja ég læt þetta gott heita í bili Kveðja Guðbjörg
16. september 2010 klukkan 17:47
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 1 athugasemd
Jæja ætli það sé ekki best að skrifa eitthvað aðeins smá svo að fólk haldi nú ekki að ég sé alveg hætt.. ég er allavegana ekki hætt en ég skrifa ekki svo oft inn á síðuna, og mun örugglega aldrei gera.. en ég skrifa af og til þegar að það er eitthvað að segja frá..
nú er ég nánast búin með sumarfríið mitt og bráðum byrjar starfsþjálfunin, það verður örugglega svolítið erfitt en samt spennandi líka. ég er búin að vera heima á Íslandi í 5 vikur, það var alveg æðilsegt að koma heim, vera hjá mömmu og pabba og hitta vinkonurnar. Við vorum í 5 daga út á selnesi þegar ég kom heim.. við mamma vorum bara að prjóna, eða réttara að sagt þá var hún að kenna mér að prjóna og við Pabbi fórum á bak nánast alla dagana, held að við höfum tekið okkur einn dag frí. Svo þurfti ég náttúrlega að detta/henda mér af baki þegar að við ætluðum að smala einn daginn, og lenti ég svona illa að ég varð frekar slæm í hnakkanum í 2 daga á eftir, en ég lagaðist öll áður en Christain kom. Svo var líka farið í heyskap og þá var sko bong og blíða á selnesinu og alveg æðislegt veður. hægt er að sjá myndir af því á 123.selnes.is ég fór líka að veiða einn daginn með Christian og veiddi hann lítinn urriða, við fórum líka og prufuðum sundlaugina á hofsósi og hún er geggjuð.. Það var allavegana alveg frábært að koma heim, þetta var allt of stutt stopp og var ég ekki sátt að koma til DK aftur, það tók mig 2-3 daga að sætta mig við það, ég varð svolítið skárri þegar að ég kom upp í hundaklúbb síðasta mánudag þegar ég hitti allt fólkið aftur eftir sumarfríið, það var mjög gaman.
annars er bara allt gott að frétta af okkur hérna úti, eins og er þá erum við bara að klára sumarfríið okkar og byrjum bæði að vinna á mánudaginn, við erum byrjuð að þjálfa aftur og svo erum við að spá í að láta Gloríu eignast eitt got enn og svo verður hún tekin úr sambandi, hún á svolítið erfitt með hormónastarfsemina þegar hún er á lóðaríi eftir að hún átti fyrsta gotið. Svo bíð ég og vona að mamma, pabbi og Davíð bróðir hryngi og segji að þau séu búin að kaupa miða út til DK um jólin, og jafnvel Jón Helgi og Kristjana líka.. það yrði svo huggulegt.
Við borðuðum úti á nýju veröndinni okkar í fyrsta sinn á sunnudaginn síðasta og svo komu tengdó í heimsókn í dag og þá fengum við kaffið okkar úti á verönd, það er mjög notalegt og kósý þarna úti með rósirnar okkar í kring.
jæja ég læt nokkrar myndir fylgja með og hafið það bara gott þangað til ég skrifa næst
Gloría og Idaho sætu
Hundahúsið sem við keyptum í hundagarðinn
Gloría sæta að máta og auðvitað bolti með á myndinni
Idaho eitthvað að troða sér, hann vill líka kíkja út
Það er nóg pláss handa öllum
Ég og hundarnir í hundakofanum
hundagarðurinn alveg að verða tilbúinn
Hundahúsið komið á sinn stað í garðinum
Tengdó og ástin mín að vinna á fullu
Gloría sæta
Idaho Sæti
Allt að verða klappað og klárt
Ég og ástin mín þegar hann keyrði mig upp á flugvöll
Sætu við Umm grillmatur og gott veður
Ég í góða veðrinu
Flöffy kanínan mín
Dýrin mín 3. Idaho, Flöffy og Gloría
Á leiðinni inn í húsið
Komin inn í húsið
Idaho að forvitnast. Flöffy og Idaho eru bestu vinir.
Flöffy að sóla sig
04. ágúst 2010 klukkan 18:29
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
Sælt veri fólkið, þá er kannski komin tími til að blogga eitthvað aðeins.. Það hefur verið mikið að gera upp á síðkastið, svo það hefur eiginlega ekki verið tími til að blogga, en nú kem ég með eitt lítið blogg en það mun vera án mynda þar sem að Christian tók myndavélina með til fraklands og ég var ekki búin að setja nýu myndirnar inn í tölvuna.
Já eins og er þá er ég bara ein heima með hundana, Christian er í fraklandi til "la mang" með fullt af einhverjum köllum.. þar á meðal pabba sínum, svo ég og hundarnir höngum bara hérna inni í rigninga veðrinu, ég er reyndar á fullu að undirbúa mig fyrir prófið sem er á þriðjudaginn næsta..
Ég man ekki alveg hvort ég var búin að blogga um það hvernig hundunum okkar hafi gengið í 2 síðustu keppnunum, fyrsta keppnin var i Han herred, þar sem að Gloría fékk 1. sæti og Idaho 6. sæti, ég var nú ekki alveg sátt með 6. sætið, en var stolt af mínum dreng þar sem að hann hefði verið rosa duglegur og þar að auki var þetta hans fyrsta keppni. svo var önnur keppni hérna í Thisted, í klúbbnum okkar, þar sem að Idaho fékk 2. sæti og Gloría 4. sæti, Gloría var ekki alveg að fíla það að vera í keppni þennan daginn og gerði ekki allar æfingarnar eins og hún gerir þær nú svo flottar yfirleitt.. en Christian sagði að ef hún fengi ekki 1. sæti þá gæti hún allt eins fengið 4, 5, eða 6 því hann hefði ekkert að gera með bikara fyrir 2 og 3 sæti.. einn frekar abbó að Idaho hafi fengið bikar fyrir 2. sæti nei ég segi bara svona..
svo er Gloria að fara að keppa á landsmóti núna 19 júní, þá koma fullt af hundum, hún hefur bara verið að keppa við 8-9 hunda en núna verða líklegast hátt upp í 20 hundar í hennar flokki, svo það verður gaman að sjá hvernig hún stendur sig.. við erum ekkert með allt of háar vonir, bara gaman að prufa og sjá hvenrig allt fer..
Já svo styttist í að ég fari að koma til Íslands, aðeins 12 dagar þangað til og mig hlakkar SVO mikið til, það verður gott að koma heim.. ég verð með hundanámskeið ef að það verður næg þátttaka, svo það er um að gera að fá alla sem eiga hunda að koma og læra eitthvað..
jæja ég læt þetta nóg heita í bili.. held ekki að ég bloggi áður en ég kem heim, kannski mun koma blogg eftir keppnina.. ef ég fæ tíma til þess..
knús í krús
11. júní 2010 klukkan 11:35
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir Engin athugasemd
Jæja ætli ég verði ekki að blogga aðeins þar sem að pabbi gamli hættir ekki að tuða fyrr en ég set inn myndir af nýju veröndinni okkar.. en eins og ég sagði í fyrra bloggi þá vorum við að fá verönd fyrir framan húsið okkar og er það alveg æðislegt, þó svo að ég hafi ekki notað hana ennþá.. Christian segir nú bara að þú (pabbi) eigir bara að kíkja í heimsókn ef að þú vilt sjá veröndina..
en hérna fáið þið nokkrar myndir.
Gloría að kíkja á nýju veröndina
Ný lögð og fín
fullt af sandi
Veröndin vígð með köldum bjór
Svona sé hún út frá stofunni okkar
Þá eru myndirnar loksins komnar inn..
annars er bara allt gott að frétta hérna.. það eru aðeins 5 vikur og 3 dagar þangað til ég kem heim í fjörðinn fagra og get ég varla beðið, mig er líka farið að hlakka pínu til að heyra hvort það sé einhver áhugi fyrir þessu hundanámskeiði sem ég ætla að halda.. það er að segja ef það verður næg þátttaka.. það verður gott að koma heim allavegana og ætla ég að njóta þess í botn.
það gengur bara ágætlega í skólanum, við erum að fara í próf eftir 4 vikur og við erum ekkert farin að undirbúa það svo ég er að verða svolítið stressuð, held við séum að fara að vinna í því í næstu viku.
Svo vorum við með hunda í keppni í gær, fyrsta keppnin á árinu.. Christian var búinn að vera voða svartsýnn og var að spá í að hætta við á síðustu stundu þar sem að Gloría var alveg ömurlega, eða það fannst honum, en hann hélt áfram að þjálfa hana og kom með í keppni. ég byrjaði með Idaho í ny C og þurfum við að sýna taumgang, það er að segja hann á að vera hæll, horfa á mig og taumurinn slakur.. það gekk nú alveg ágætlega.. hann var svolítið lengi í snúningum og taumurinn varð stífur nokkrum sinnum, svo áttum við að sýna standa, sestu og legstu.. það gekk mjög vel fyrir utan að hann stóð upp í leggstu æfingunni sem varð fyrir því að við fengum bara 6 sæti annars hefðum við fengið 2. en það skiptir ekki svo miklu máli hann fékk nógu mörg stig til að komast upp í C flokkinn. Svo var það Christians og Gloríu tími til kominn að sýna sínar listir.. Gloría var alveg rosalega dugleg og gerði allt sem að Christian bað hana um, með nokkrar villur.. enginn er perfekt, en Christian var sáttur með hana og ég var mjög stolt.. við héldum að hún lægi einhverstaðar mitt á milli allra hundana sem að kepptu en nei nei viti menn hún Gloría okkar rúllaði þessu bara öll saman og tók 1. sætið með stíl.. og urðum við þá enn stoltari af skvísunni okkar..
jæja ég læt þetta gott heita í bili, læt fylgja nokkrar myndir af hundunum frá hversdags lífinu.
sætu fengu að vera upp í rúmmi
Idaho
Gloría
Idaho í garðinum..
16. maí 2010 klukkan 13:43
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
Sælt veri fólkið, það er þó nokkuð lengi síðan að ég skrifaði síðast og hef ég frá nokkru að segja núna.. hvar á maður að byrja eiginlega.. jæja ég er komin aftur á skólabekk eftir að hafa verið í verknámi í 3 mánuði, það var alveg ótrúlega gaman að vera vinna í leikskólanum, vinnufélagarnir voru alveg æðislegir og börnin yndisleg.. svo það var svolítið erfitt að segja bless við þau þegar að ég þurfti að hætta. En það er nú bara mjög fínt að vera komin í skólann aftur, í næstu viku erum við að fara að prufa 3 höfuðfög sem við þurfum svo að velja seinna á önninni, það er að segja við megum bara velja eitt af þessum 3. og það er lífstill, líkami og hreyfing er fyrsta fagið, tónlist, drama og leikrit eða svoleiðis er annað fagið, svo er það tækni, náttúra og ég man ekki hvað 3 heitir en það er allavegana síðasta fagið. Svo mig hlakkar alveg hrikalega mikið til að prófa öll föginn, ég byrja á því að prufa lífstíl, líkama og hreyfingu sem við prufum í 4 daga og svo prufum við hin 2 fögin líka í 4 daga, þannig að næstu 3 vikur verða örugglega mjög skemmtilegar. Svo erum við líka að fara að velja okkar næsta verknám í næstu viku, við fáum að sjá hvert við getum farið í verknám, ég er næstum viss um að ég vilji fara í fyrsta bekk og árvist, en nú sjáum við til.. það getur vel verið að það sé fullt af öðru skemmtilegu.
já um páskana fórum við til árósar og hittum hana Júlíönu mína, það var æðislegt að sjá hana, við tókum hundana með og þeir fengu að koma með niður í göngugötuna, ég hélt að allt yrði ömurlegt með þeim þar sem að þau eru mjög góð í að draga okkur áfram, en viti menn þau voru bara svo stillt og höguðu sér vel, til að byrja með geltu þau mikið af öðrum hundum og við gátum varla stoppað þau, en svo þegar að lengra leið á daginn og þau byrjuðu að gelta þá var bara nóg að segja stop og þá hættu þau, þannig ég varð mjög hissa og stolt af hundunum mínum, svo þau geta alveg komið með í stórborga ævintýri seinna.
svo helgina eftir að við vorum í árásum, keyrðum við til karup og viborg til að heimsæka hvolpa eftir hana Gloríu, við heimsóttum hana Dakota sem býr í karup með fjölskyldunni sinni og hvítum scheffer. hún var voða sæt, minni en Gloría en líktist Gloríu samt rosa mikið. hún er mjög glöð lítil tík og svo heimsóttum við Ohio (sem heitir Ollie núna) hann býr í viborg með fjölskyldunni sinni og scheffer blandaðri tík. hann býr úti á landi og vá hvað hann líkist Idaho í eðlisfari, hann var stór og mikill og æðislega flottur. fullur af fjöri og gamani. hér koma nokkrar myndir af þeim.
sæta Dakota
Alveg eins og mamma sín
Ollie (Ohio) svakalega flottur
stór og myndarlegur strákur.
Svo erum við byrjuð á að gera verönd fyrir framan húsið, í þessum skrifuðu orðum eru Christian og pabbi hans Claus að þjappa fullt af sandi saman áður en flísarnar verða lagðar, svo í kvöld getum við líklegast sitið úti á nýju veröndinni okkar við nýja garðborðið og garðstólana okkar og fengið eitthvað gott að drekka Svo það verður alveg frábært þegar að þeir verða búnir að leggja nýju veröndina, en ég vil sýna ykkur nokkrar myndir þar sem að ÉG var að moka fyrir veröndinni. Svaka dugnaður í mér.
Svona sá þetta út áður en það var búið að grafa fyrir allri veröndinni
smá stykki eftir, til að veröndinni sé nógu stór
og ég mokaði allt þetta stykki alveg sjálf
svona lítur þetta svo út þegar ég er búin að moka
það tók mig ca klst
er mjög stolt af sjálfri mér, alveg hörkudugleg hérna í danaveldinu, var ein heima og fór bara að moka fyrir veröndinni svo það væri tilbúið þegar að Christian kom heim, hann var líka ekkert smá ánægður með mig já nóg um veröndina okkar og að hundunum.Gloría og Idaho eru alveg rosalega dugleg, þau eru alltaf að læra meira og meira, Gloría að verða hlíðnari og hlíðnari. við erum byrjuð að hjóla með þau á nýju MTB hjólunum okkar og höfum farið í skóginn nokkrum sinnum. þar eru þau reyndar ennþá smá pirrandi, þar sem að þau vilja alltaf vera fyrst, þannig þau geta átt það til að draga okkur áfram, en við viljum það ekki þar sem að það getur verið smá hættulegt, við erum að hjóla á milli trjáróta og stígurinn er mjög ójafn, en ætli þau læri það ekki einn daginn. En þau eru orðin bæði orðin mjög góð til hlíðnisþjálfun, og það eru fyrsti keppnirnar í ár núna handan við hornið, það er ein í "han herred" 15 maí og við erum enn að spá í hvort við eigum að fara þangað, það er þá bara ég og Idaho sem munum keppa. en við erum að fara í 25 ára afmælið um kvöldið svo ég er enn að velta því fyrir mér hvort við eigum að fara eða ekki. svo er keppni hérna í "Thisted" 29 maí sem við munum bæði taka þátt í, sem verður vonandi mjög gaman.svo er bara 8 vikur og 3 dagar þangað til ég kem heim á klakann góða, mig hlakkar ekkert smá til og það verður gott að koma heim í heilan mánuð. Hlakka til að sjá ykkur ölljæja nóg í bili. knús
25. apríl 2010 klukkan 10:38
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
Loksins er komið vorveður hérna í danmörku, nú erum við búin að hafa snjó í næstum 3 mánuði og finnst mér alveg æðislegt að maður geti labbað úti án þess að þurfa að vaða snjó upp að mitti.. er meira að segja farin að hjóla úti, alveg frábært.. Snjórinn er nánast alveg farinn, við höfum agnar ögn í garðinum okkar en allar götur og gangstéttar eru alveg auðar.. og engi og tún eru ekki öll í moldarsvaði.. sem er alveg frábært.. svo nú getum við þjálfað út í klúbbnum aftur.. vorum þar í gær að þjálfa og það var alveg æðislegt veður og gott að geta verið komin til baka, í staðinn fyrir að þurfa að þjálfa inn í reiðhöll þar sem að allt bergmálar ef að hundarnir gelta.. svo það er alveg frábært að geta þjálfað úti aftur.. en nóg um veðrið í DK.
já ég veit nú bara ekki alveg hvar ég á að byrja, það skeður nú ekkert neitt svaka mikið hérna í DK, ég er náttúrlega ennþá í starfsþjálfun og á aðeins 3 vikur eftir.. það verður skrítið að hætta í leikskólanum og byrja í skólanum aftur, en það verður nú líka gott að komast í skólann aftur.. ég á að skila ritgerð núna 6 apríl, um börn sem ég hef fylgst með í leikskólanum og mér finnst stunum að ég sitji bara föst, en maður verður bara að taka því rólega þetta mun allt koma. Svo eigum við að velja okkar næsta stað fyrir starfsþjálfun eftir sumarfríið núna bráðum.. það verður spennandi að sjá hvert við getum komið..
Svo eru páskarnir alveg að koma, það verður gott með smá fríi þó svo að það sé nánast endalaust fríi þegar maður gengur í skóla.. það er allavegana mikið af fríum finnst mér, en það er svo sem mjög fínt líka.. þá getur maður notað tímann í fríinu til að skrifa ritgerð og lesa alla textana sem við höfum.. það er þó nokkuð mikið af lesefni í þessu námi.. svo styttist óðflugum í prófið.. og er ég ekkert svo ánægð með það, en það verður gott að fá það yfir staðið.. það eru aðeins 11/12 vikur þangað til að prófið verður..
en svo þegar að prófið er búið þá er ég bara alveg að fara að koma heim, kem heim viku eftir að ég hef verið í prófinu svo það er nú ekki svo langt þangað til ég kem heim á klakann fagra.. það verður gott að koma heim til mömmu og pabba og Davíðs bróa og vera hjá þeim í heilan mánuð.. það verður bara nice..
svo vona ég að það verði næg þáttaka í hundaþjálfun svo ég hafi nú eitthvað að gera og svo ætla ég að nota tímann til að fara á hestbak og hitta vinkonurnar þetta veðrður örugglega alveg æðislegt sumar.
það gengur alveg rosavel með hundana þau verða alltaf betri og betri í þjálfun, Gloría er farin að koma með apporten sem er alveg ótrúlegt, hún kemur eiginlega aldrei þegar hún á að sækja eitthvað fyrir okkur, en núna kemur hún alltaf og það er bara svo frábært að sjá að loksins skilur hún út á hvað æfingin gengur og maður verður bara svo stoltur af því.. við héldum að hún myndi aldrei læra þetta og erum búin að nota mikin tíma í að reyna að kenna henni og loksins tókst það.. Idaho er líka orðin mjög góður, hann er mjög vinnuglaður og elskar að gera hluti fyrir mig.
já og svo er ég farin að hlaupa aftur eftir 2mán pásu, svo nú varð ég að taka mig saman.. svo nú er ég farin að hlaupa 3 í viku, tek Idaho yfirleitt með mér og svo hjóla ég með Gloríu þegar við erum búin að hlaupa.. svo það er nóg af hreyfingu að fá.. hef líka verið að fara að synda 2 í viku, en það er ekki eins fast og hlaupatúrinn okkar, ég fer í sund þegar að það er tími til þess..
annars er bara allt gott að frétta hérna úr danaveldinu.. hlakka alveg rosa mikið til að koma heim í sumar og knúsa ykkur öll.
Guðbjörg í sumarskapi.
21. mars 2010 klukkan 10:02
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
hvernig væri að koma með nýtt blogg hérna á síðuna, ég veit að ég er léleg að skrifa hérna inni.. en mér finnst bara leiðinlget að skrifa þegar ég hef ekkert að segja, þá er skemmtilegra að bíða aðeins og hafa frá nokkru að seigja.. mér finnst líka skemmtilegast að það fylgi myndir með svo þið getið nú haft einhverja hugmynd um hvað ég er að tala.
jæja, héðan er allt gott að frétta, snjórinn er hér ennþá og virðist ekkert vera að fara.. fólk segir að snjórinn verði hérna allavegana framm að páskum, og það finnst dönunum nú hálf leiðinlegt þar sem að maður notar yfirleitt þessa 5 daga til að gera garðinn sinn fínann fyrir sumarið.. en hér koma nokkra myndir til að sýna ykkur snjóinn í garðinum okkar..
svona lítur garðurinn okkar út hundunum finnst ekki leiðinlegt að hafa allan þennan snjó meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó....
já ég held ekki að við komumst í garðinn okkar um páskana, en við ætluðum nú að breyta blómabeðinu okkar sem er einhverstaðar undir öllum snjónum, og svo langar okkur að setja flísar fyrir framan húsuð, fyrir utan hurðina sem er inn í stofunni. En það verður víst að bíða til betri tíma..
Við höfum farið í nokkrar skógarferðir upp á síðkastið, það er SVO leiðinlegt að labba í bænum á hverjum degi vegna þess að það er svo mikill snjór, svo við keyrum í skóginn og leifum hundunum að hlaupa um allar trissur, og það finnst þeim ekki leiðinlegt.. við fórum í skógarferð 31. janúar og þar festum við bílinn okkar, bílinn situr fastur í minnsta snjó og það tók Christian 30 mín að losa okkur (það var enginn snjór eiginlega, það var bara svolítið hálft að bíllinn náði ekki taki að aftan, svo Christian þurfti að brjóta ísinn með skóflu) svo vorum við líka í skógarferð í gær og það var svolítið erfiðari ganga enn fyrri daginn, það var komið meiri snjór og fólk var ekki búið að labba þá leið sem við fórum, svo það var bara vaðið snjóinn, enda vorum við þreytt eftir góðan göngutúr... hér koma nokkrar myndir, byrja með þær frá 31. jan, og auðvitað voru hundarnir með..
Idaho er svo mikið fotogen að hann vildi endilega vera með á myndinni
fullt af góðri lykt eftir dádýrin, og Idaho að pissa
stillt sér upp til að leifa "mömmu" að taka mynd
Gloría alltaf falleg í yðrum skógar
Fallegust og nýtur sín í náttúrunni
Idaho er líka alltaf flottur
Svo byrjaði það að snjóa...
..Og það var bara flott
Ekta jólasnjór
En svo gleymdi ég auðvitað að taka myndir af því þegar að bíllinn sat fastur, en þið getið rétt ýmindað ykkur hversu pirraður Christian var..
hér koma nokkrar myndir frá gærdeginum...
Byrjuðum á æðislega fallegum stíg með greitrjáum á báðum hliðum
hundarnir voru auðvitað með
Svo var auðvitað tekið mynd af mér og flottu hundunum mínum..
...Undir stóru og flottu tréi
Svo var tekið mynd af Christian með hundunum okkar
og nærmynd
svo gengum við þar sem skógurinn brann fyrir ca 4-5 árum síðan
Það er mjóg flott hérna á sumrin jafnt sem á veturnar og það er svo mikil ró yfir öllu
Idaho alltaf jafn flottur, að elta snjóbolta
á þessum vegi gengum við í átt að bílnum aftur
Æðislega flott náttúran hérna úti
Hundarnir eru líka flottir og njóta sín æðislega frí í náttúrunni
Hundarnir voru orðnir mjög þreyttir eftir að hafa synt í gengum snjóinn í klukkutíma svo það var sofið gott þegar við komum heim, fundum reyndar 2 hvolpa á meðan við vorum í skóginum, annar hvolpurin kom til okkar og sem betur fer var hann með hálsól með nr til að hryngja í eigandann en hinn hvolpurinn hljóp í burtu, eigandinn kom og sótti hvolpinn sem var hjá okkur og sagðist geta kallað hinn til sín, svo við vonum að hann hafi fundið hvolpinn sinn aftur..
svo er ég að fara að byrja með mitt fyrsta hvolpanámskeið í dag, ég er bæði spennt og stressuð.. verður gaman að sjá hversu dugleg ég er að kenna öðrum hundaeigendum og hversu dugleg þau eru með hvolpana/hundana sína.. en núna verð ég að fara að gera mig tilbúna, við kyrum út í klúbb eftir 45 min.. vona að þið höfðu gaman af blogginu og myndunum.. endilega að kommenta..
knús Guðbjörg
13. febrúar 2010 klukkan 08:01
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
Halló halló kæra fólk, hvernig væri að byrja að blogga pínu aftur, það er nú þó nokkuð langt síðan síðast og sumir ekki alltof ánægðir með það.. en nú kem ég með smá blogg handa ykkur.
Það er allt gott að frétta af okkur við höfum það mjög gott hérna í danaveldinu í öllum snjónum og hálkunni, sem betur fer er hægt að keyra á götunum núna, en eigum við ekki að byrja á byrjuninni.
Við fórum til Íslands um jólin, það var löngu búið að ákveða það, maður var farinn að telja dagana niður og loksins kom að því að við flugum yfir hafið blátt og lentum á klakanum. það var alveg æðislegt að koma heim, afi sótti okkur á völlinn og svo brunuðum við í bæinn.. við gistum hjá ömmu og afa eina nótt og svo var haldið norður á leið með Jón Helga bróður og Kristjönu mákonu ásamt henni Lísu litlu pomma stelpu. Það var alveg æðislegt að koma heim til mömmu og pabba í allt jólaskrautið og bara að fá að vera þar sem manni líður best, þar sem maður á heima. Við höfðum það æðislega gott yfir jólin, Jón Helgi og Kristjana ætluðu fyrst bara að vera yfir jólin og fara heim á milli jóla og nýárs, en svo breytist planið og þau ákváðu að vera framm yfir áramótin líka, það var alveg frábært, allt var eins og það átti að vera og ósk mín rættist, að fá að hafa Jón Helga og Kristjönu framm yfir áramót. Foreldrar Kristjönu komu á gammlársdag og voru hjá okkur yfir áramótin. Við gáfum Jón Helga og Krisjönu spurningar spil í jólagjöf sem var spilað nánast öll kvöld, ég held að það hafi verið aðeins eitt kvöld þar sem við spiluðum ekki, það var alveg æði.. við fengum líka snjóinn á aðfangadag og allt var svo jólalegt.. svo brunuðum við suður með Jón Helga og Kristjönu 1 jan, og gistum hjá þeim 2 nætur eða þangað til við héldum heim á leið, þau voru svo indæl að keyra okkur á völlinn og svo var kvatt fagra ísland. Við höfðum allavegana æðisleg jól í faðmi minnar fjölskyldu sem var langþrátt. Það var gott að koma heim yfir jólin aftur.. hitti líka bekkinn minn aftur þar sem að við héldum bekkjarhitting, og það var alveg frábært. æðislegt kvöld með frábæru fólki... ég hitti líka nokkrar vinkonur mínar en ekki allar, það er svo mikið að gera hjá manni yfir jólin og tíminn flaug bara af stað. En ég mun hitta á þær næst þegar ég kem..
Svo þegar við komum til DK þá kom þessi brjálaði stormur með snjó og læti.. svo allt varð á kafi, við vorum lokuð inni í 2 daga. En nú er allt komið í sama form aftur fyrir utan allan þennan snjó.
Við erum byrjuð í hundaþjálfun aftur, þó svo að það var ekki þjálfað neitt mikið síðasta laugardag útaf snjó.. það var allt á kafi svo lítið var plássið, en við fórum bara með hundana heim til tengdó eftir þjálfunina og létum hundana draga okkur á stígasleða.. það var geggjað gaman, til að byrja með vissu þau ekkert hvað þau ættu að gera en það kom smám saman og þau gátu alveg dregið okkur.. það var æðislega gaman að prufa, maður þarf nú að nota allan þennan snjó til einhvers.. en nú vitum við það að hundarnir okkar geta alveg dregið
jæja ætli þetta sé ekki gott í bili. læt nokkrar myndir fylgja með.. knús og kossar héðan.
jólatréið með öllum pökkunum..
Christian með jólasveinunum..
Hann fékk pakka og mandarínu
fína jólaborðið okkar
Jólalandið hennar mömmu
Christian og Lísa og allt jólaskrautið
Jón Helgi og Kristjana með Lísu við jólatréið
Við sistkynin.
Börnin við jólaborðið.. orðin svöng
Allir að bíða eftir matnum
sæt og fín
loksins kom hann og þá gátum við byrjað að borða :)
jóla jóla :)
Við fórum í góðan göngutúr með hundana.. það var alveg frábært í öllum snjónum
Áramótin..
Brennan
Snjór í danmörku
18. janúar 2010 klukkan 06:28
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 1 athugasemd
Já það er alveg rétt hjá henni Fríðu að það sé komin tíma á nýja færslu.. ég hef bara verið svo busy síðasta mánuðin að það hefur varla verið tími fyrir tölvu, en það mun allt lagast 1 des.. það er nefninlega mikið að gera þegar maður bæði er í skóla, vinnu og svo hefur maður heimalærdóm og hunda sem þarf að hreyfa.. tala ekki um að ég þarf að hreyfa sjálfa mig líka. En eftir 2 vikur þá mun ég eingöngu einbeita mér að skólanum og hundunum.
Það hefur margt á dagana drifið, ég er útlærð hundaþjálfari sem er alveg æðislegt en samt mjög sktítið, er bæði spennt og kvíðin fyrir að fá mínn eiginn hóp eftir jólin.
Gloría var í stöðuprófi síðastliðin laugardag og var ég alveg viss um að hún myndi standa sig og komst upp í c hópinn, en nei nei það fór allt úr böndunum og hún vildi bara ekkert gera eins og Christian sagði svo þeim vantaði 2 stig til að komast upp. Svo það verður bara gert betur næst.
Idaho er að fara í smá hvolpapróf næsta laugardag og er það mjög spennandi.. hlakka mikið til að sjá hvernig hann muni standa sig.
Svo er alveg að koma að erfiðasta deginum á þessu ári, Chica fær að fara til himna á föstudaginn.. aðeins 4 dagar sem við höfum með fallegu stelpunni okkar, þetta mun vera ótrúlega erfitt og ég á eftir að sakna hennar alveg hrikalega mikið
Síðasta laugardag vorum við líka með jólahlaðborð hérna heima með vinum Christians frá heimavistaskólanum.. það var mjög gaman, borðuðum góðan mat, höfðum möndlugjöf og pakka spil var alveg frábært, flestir af vinum hans sváfu hjá okkur yfir nóttina svo við Christian sváfum út í herberginu við bílaskílið okkar með Gloríu og Idaho og það var alveg æði að fá að sofa með hundunum mínum aftur.. það er langt síðan að Gloría fékk að vera í sama rúmmi og ég.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, það eru bara 5 vikur þangað til að við komum á klakan og get ég varla beðið, mig hlakkar svo mikið til að koma heim og fá mömmu mat og halda íslensk jól það verður alveg æðislegt.. er eignlega líka farin að langa ekkert að koma heim til DK aftur, finnst tímin allt of fljótur að líða þegar ég er heima á klakanum.
Svo er það bara að einbeita sér að skólanum og þjálfa hundana, stefni á að komast hátt með Idaho á næsta ári.. en nú sjáum við til.. væri gaman ef ég kæmst allavegana upp í C með hann. Er að fara í mína fystu starfsþjálfun núna í febrúar og fæ að vita það í næstu viku hvert ég fer, það verður mjög spennandi. Svo það er margt skemmtilegt að fara að ske.
jæja læt fylgja nokkrar myndir með frá sumrinu sem ég loksins kom inn í tölvuna eftir langa og stranga tilraun að setja þær inn. njótið vel.
Knús
Idaho
Christian, Ég og Idaho
Ég og Idaho
Fallegu hundarnir mínir. Chica, Idaho og Gloria
Idaho elskar trampolin, honum finnst það rosa gaman.
Idaho og Christian, slappa af á trampolininu
Elskuðu hundarnir mínir
Ég með flottustu hundum í heimi. Gloríu, Idaho og Chicu
17. nóvember 2009 klukkan 14:26
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 5 athugasemdir
Halló Halló fagra ísland.. ætli sé ekki kominn tími á nýt blogg, ég hef allavegana nokkrar fréttir og veit barasta ekki hvar ég á að byrja.
ég er komin í 12 daga frí úr skólanum, við erum í vetrarfríi.. þó svo að það sé frí í skólanum þá ætla ég nú samt að læra eitthvað, þarf að fara yfir textana aftur og læra orðin sem að ég skil ekki.. sem betur fer er ég ekki sú eina sem á erfitt með að skilja orðin, danirnir eiga líka erfitt með það og vita oft og mörgum sinnum ekki um hvað kennararnir séu að tala. svo ég er ekki ein á báti. En semsagt ætla ég að nota fríið mitt í að fara yfir textana aftur og svo auðvitað bara að njóta þess að vera með hundunum mínum..
það er bara allt ágætt að frétta af hundunum, Chica okkar er reyndar veik og vitum við ekki hversu mikið hún á eftir, við höfum talað um það að leyfa henni að sofa svefninum djúpa. Það er samt bara svo rosalega erfitt að taka skrefið og fara til dýralæknisins. Christian er heldur ekki alveg búin að sætta sig við það, svo ætli hann þurfi ekki að fá nokkra daga/vikur til að kveðja hana. Hún fær verkjatöflur sem að hjálpa á verkina í mjöðmunum hennar. Það er alveg rosalega erfitt að sætta sig við ástandið en maður veit það innst inni að hún á það besta skilið og ef henni líður ekki vel þá eigum við að gefa henni leyfi til að sofa.
Annars gengur mjög vel með Gloríu og Idaho, Gloría er byrjuð í hlíðnisþjálfun með Christian og gengur alveg rosa vel hjá þeim, þau byrjuðu í ny-c og eru búin að þjálfa í 3-4 vikur, og reiknum við með að hún komist upp í C núna í nóv þegar hún fer í mat. Idaho er enn á hvolpanámskeiði og gengur bara alveg æðislega vel með hann.. ég hef miklar væntingar til hans og held og vona að við munum ná langt, hann er mjög fljótur að læra og vill gera allt fyrir mig.. svo það gengur bara mjög vel hjá okkur.
ég er búin að hafa mjög mikið að gera síðustu daga og þá sérstaklega í kringum hundana. síðustu helgi var dagur hundsins hérna í Thisted, og það var sýnd hundamynd fyrir börn sem að heitir STORM, dönsk mynd. Sá sem að sér um bíóið er að þjálfa upp í klúbb hjá okkur og spurði formanninn hvort við værum til í að vera með í smá sýningu og auðvitað vildum við það, svo ég og Gloría vorum með í að sýna smá hundafimi fyrir börn og fullorðna fyrir utan bíóið í Thisted síðastliðin laugardag. svo á sunnudaginn var ég á hundaþjálfunar námskeiði og lærði helling um spor. Það er að segja við búum til spor fyrir hundana og svo látum við þá leita, mjög skemmtilegt og spennandi. ég prufaði það á bæði Idaho og Gloríu núna í vikunni og ég hef alltaf verið smá smeik við að Gloría muni sýna því einvhern áhuga þar sem að hún notar nefið sitt ekki eins mikið og augun og eyrun og nú er hún orðin það gömul að það getur verið erfitt að kenna henni spor, en nei nei það var bara ekkert mál, hún fann alveg út úr því hvað hún átti að gera og það gerði Idaho líka, mjög stolt af hundunum mínum. Svo á mánudaginn var ég á fyrirlestri um það hvernig maður á að lesa líkamstjáningu hundsins. Hundurinn treistir því að við getum lesið hann og skiljum hvað hann vill og biður um, hundurinn getur jú ekki komist í samband við okkur á annan hátt. Það var mjög spennandi fyrirlestur og lærði ég margt á því.
Núna á ég bara eitt hundaþjálfunar námskeið eftir, sem er leitarnámskeið, og svo er ég orðin hundaþjálfari. mig hlakkar alveg hrikalega til að fara á næsta námskeið, finnst það mjög spennandi. Svo í janúar byrja ég með mitt fyrsta hvolpanámskeið upp í klúbb, alveg alein.. hlakka til en er líka kvíðin.
Svo erum við alveg að fara að koma til Íslands og mig hlakkar alveg rosalega til að halda jól heima hjá mömmu og pabba.. það eru 2 ár síðan, svo það er tími til komin að vera heima.. það er mikill spenningur hérna heima hjá okkur, Christian hlakkar líka til að koma á klakan og slappa af.. ég get varla beðið, enda er ég farin að telja niður vikurnar.
jæja læt þetta vera gott í bili, Christian fer að koma heim og þá ætlum við að fá okkur kanilköku sem ég var að baka.. nammi namm
knús Guðbjörg
08. október 2009 klukkan 13:39
Guðbjörg Ósk Daníelsdóttir 2 athugasemdir
Um mig: Ég er fædd árið 1988 í desembermánuði. í maí 2007 ákvað ég að flytja til Danmerkur með hundinn minn og búum við núna á norður jótlandi í bæ sem heitir Koldby. Ég hef verið í utanskólanámi frá FNV á Íslandi en varð STÚDENT haustið 2008 og svo vinn ég hérna í DK sem handicaphjælper. Ég á eina blendings tík sem er mér allt, og heitir hún Gloría, hún er það besta sem ég á. Ég á æðislengan kærasta sem að heitir Christian Rysgaard, og keyptum við saman Sankt bernhards tíkina Chicu í júni 2008, hún heldur að hún sé kjölturakki og sófahundur þó svo að hún sé risa stór hlunkur, hún er allger dúlla. Ég á einnig æðislega vini, sem eru ávalt til staðar og sakna ég þeirra óendanlega mikið ásamt fjölskyldu minnar á Íslandi.